Problem H
Nearly Case Insensitive Sort
Languages
en
is
Í miðri keppni fór fartölva liðs þíns að haga sér eitthvað undarlega. Liðsfélagar þínir Abba og Geir komust einhvern veginn að þeirri niðurstöðu að einhver annar keppandi væri að hakka sig inn í tölvuna ykkar! Þau ganga strax í það að stoppa tölvuþrjótinn sem er að þessu og fara að hamra á lyklaborðið af fullum krafti, bæði samtímis meira að segja.
Þú veist ekki alveg hvort þetta stemmi, en þetta er alla vega að sóa tíma. Til að reyna koma í veg fyrir frekar vitleysu grípurðu í hleðslusnúruna og kippir henni úr. Liðsfélagar þínir líta á þig og gefa þér undarlegt augnaráð, þetta er fartölva svo hún getur verið án hleðslusnúru í marga tíma.
Fyrst það virkaði ekki þarftu að sannfæra þau um að þetta sé ekki tölvuþrjótur. Best væri að fara í gegnum villuskrár stýrikerfisins og finna hvað er að. Verra er að þær eru í tímaröð en ekki stafrófsröð, sem gerir það erfiðara að finna allt sem byrjar á tiltekinni villumeldingu til að sjá hvað er að gerast oft. Innbyggða röðunarvirknin er hins vegar bara að raða eftir ASCII-gildi, svo skilaboðin musin hikstadi og Musin er með vesen enda ekki nálægt hvorum öðrum.
Til þess þarftu að snöggvast útfæra hjálparforrit sem raðar línum skrárinnar í orðabókaröð, en hundsar muninn á stórum og litlum stöfum. Ef skilaboðin eru eins utan við hvort stafir séu há- eða lágstafir þarf hins vegar að raða þeim innbyrðis með venjulegum hætti. Það er þá eftir ASCII-gildi stafanna, eða bara orðabókaröð þar sem stórir stafir eru á undan litlum stöfum. Bil telst vera á undan öllum stöfum í stafrófsröð. Ef ein lína byrjar á annarri, til dæmis tek og tekst þá kemur styttri línan á undan.
Inntak
Fyrsta lína inntaksins inniheldur eina heiltölu $L$, fjölda lína sem mun fylgja. Ávallt gildir $1 \leq L \leq 1\, 000$. Næst fylgja $L$ línur sem hver er mest $64$ stafir, nýlínustafurinn meðtalinn. Hver lína mun bara innihalda ASCII há- og lágstafi ásamt bilum, og enda á nýlínustaf. Línur innihalda ávallt að minnsta kosti einn bókstaf.
Úttak
Prentið $L$ línur, sömu línur og í inntakinu, nema raðaðar í rétta röð eins og lýst er að ofan. Passið að prenta engin auka bil.
Stigagjöf
|
Hópur |
Stig |
Takmarkanir |
|
1 |
15 |
Bara lágstafir á línunum. |
|
2 |
10 |
Bara há- og lágstafir á línunum. |
|
3 |
25 |
Bara lágstafir og bil á línunum. |
|
4 |
30 |
$L \leq 2$. |
|
5 |
20 |
Engar frekari takmarkanir. |
| Sýniinntak 1 | Sýniúttak 1 |
|---|---|
4 mouse error crash froze |
crash error froze mouse |
| Sýniinntak 2 | Sýniúttak 2 |
|---|---|
5 Mouse mous mOUs mouSe mous |
mOUs mous mous Mouse mouSe |
| Sýniinntak 3 | Sýniúttak 3 |
|---|---|
5 mouse mouse mouse wheel mouse wheel mouse |
mouse mouse mouse mouse wheel mouse wheel |
