Problem G
Klifurfall
Languages
en
is
Elvar og Samúel kláruðu leiðsluklifurprófið í fyrra og eru nú orðnir heillaðir af íþróttinni. Þeir hafa farið að minnsta kosti tvisvar sinnum á viku en eru samt ekki komnir með allar leiðirnar á hreint. Þannig, eins og margir klifrarar gera, byrja þeir að fylgjast með hvernig aðrir klifra leiðina og skrá niður í hvaða haldi hver um sig er að falla á. Þeir vona að vita hvar flestir klifrarar eru að falla á geti hjálpað þeim smám saman að læra að lesa leiðina betur.
Eins og allir vita er regla númer eitt í klifri að aldrei príla né pæla. Þeir hafa nú skrifað niður öll þessi gögn en þar sem þeir lifa eftir þessari reglu þá geta þeir ekkert pælt í þessu. Þeir vonast til að þú getir hjálpað þeim að finna út hvaða höld flestir klifrar eru að falla á.
Inntak
Fyrsta línan í inntakinu inniheldur heiltöluna $1 \leq n \leq 100\, 000$, fjölda tilrauna sem voru gerðar við vegginn. Næst á eftir fylgja $n$ línur, hver inniheldur nafnið $r_i$ á leiðinni sem var klifruð, $1 \leq |r_i| \leq 10$ þar sem $|r_i|$ er lengdin á nafninu, og heiltöluna $1 \leq h_i \leq 10^9$ númer haldsins sem klifrarinn féll á.
Úttak
Fyrir hverja leið skrifið eina línu sem inniheldur nafn leiðarinnar. og númer haldsins sem flestir klifrarar féllu á, aðskilt með bili. Leiðirnar skulu vera skrifaðar úr í orðabókarröð og ef um jafntefli á höldum er að ræða skal skrifa haldið sem kemur fyrr í leiðinni.
Stigagjöf
|
Hópar |
Stig |
Takmarkanir |
|
1 |
20 |
$1 \leq n \leq 1\, 000$ |
|
2 |
20 |
$1 \leq n \leq 100\, 000$ og aðeins ein leið var klifruð. |
|
3 |
60 |
Engar frekari takmarkanir. |
| Sýniinntak 1 | Sýniúttak 1 |
|---|---|
5 snakurinn 3 snakurinn 2 snakurinn 3 katla 5 katla 1 |
katla 1 snakurinn 3 |
| Sýniinntak 2 | Sýniúttak 2 |
|---|---|
4 hellirinn 10 hellirinn 21 hellirinn 67 hellirinn 67 |
hellirinn 67 |
